Þolinmæðisvinna í Barentshafi

Deila:

Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í vikunni eftir að hafa verið að veiðum í Barentshafi. Aflinn var 928 tonn en túrinn tók alls 40 daga. Veiðidagarnir voru 33. Verðmæti aflans hleypur á 413 milljónum króna.

Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Þar er rætt við skipstjórann í túrnum, Sigurð Hörð Kristjánsson. Þar segir að aflinn hafi að mestu verið þorskur, eða um 90% aflans. Hann ber að veiðin haf iverið róleg og þetta hafi verið þolinmæðisvinna. Þeir hafi tekið 100 hol og meðalholið hafi gefið 9 tonn. Meðalveiði á togtíma var 1.560 kíló.

„Vinnslan um borð gekk mjög vel og fór megnið af aflanum í dýrar pakkningar. Veitt var innan norskrar lögsögu á Fuglabanka, Garðarsbanka og K-bankanum. Veður var ágætt nánast allan túrinn. Við fengum þó brælu í restina á Garðarsbankanum. Við höfðum nokkur samskipti við norsku gæsluna og voru þau afar góð. Þeir komu um borð til okkar í lok túrs og fóru yfir málin. Við þurftum líka á þjónustu gæslunnar að halda þegar veiktist maður hjá okkur um borð. Það var brugðist skjótt við og kom þyrla 40 – 50 mínútum eftir að beiðnin frá okkur barst og flutti manninn í land þar sem hann fékk læknisþjónustu. Það er svo sannarlega gott að fá svona toppaðstoð. Næst á dagskrá hjá Blængi er mánaðartúr þar sem lögð verður áhersla á að veiða ufsa og grálúðu hér á heimamiðum. Gert er ráð fyrir að lagt verði úr höfn á miðvikudag,” segir Sigurður Hörður í fréttinni

Deila: