Gullver í bölvuðu brasi

Deila:

Ísfisktogarinn Gullver NS landaði 72 tonnum í Hafnarfirði í gærmorgun. Aflinn var mest karfi og þorskur.

Á vef Síldarvinnslunnar var rætt við Þórhall Jónsson skipstjóra. Þá var skipið á leið á miðin á nýjan leik. Hann segir að vel hafi gengið að veiða karfa af Melsekk. Skipið færði sig svo á Eldeyjarbankann, þaðan sem höfðu komið góðar veiðifréttir.

„Þegar þangað var komið hafði veiðin hins vegar dottið niður. Þá færðum við okkur norður undir Látragrunn en þaðan höfðu einnig borist góðar fréttir. Þetta var sama sagan því veiðin var dottin niður þar líka þegar við komum. Að þessu loknu héldum við á ný á Eldeyjarbankann og vorum þar það sem eftir var túrsins. Undir lokin var veðrið ákaflega leiðinlegt. Það voru yfir 25 metrar síðasta einn og hálfan sólarhringinn og við lentum í bölvuðu brasi, festum illa og slitum grandara. Það gengur ekki alltaf allt að óskum í þessum bransa en það gengur bara betur næst,” segir Þórhallur.

Deila: