Ráðherra heilsaði upp á sýnendur

Deila:

Bjarkey Gunnarsdóttir, matvælaráðherra, flutti ávarp við formlega opnun Íslensku sjávarútvegssýningarinnar í Kópavogi og í gær og sagði þar meðal annars að Íslendingar státi af því að hafa tekist með ágætum að ná jafnvægi milli nýtingar og verndar fiskistofna. Í sögulegu samhengi sé það mikilvægt.
„Með tilkomu kvótakerfisins náðum við tökum á ofnýtingu fiskistofna hér við land en óhætt er að segja að við höfum að einhverju leyti tapað trausti almennings með tilkomu framsalsins,“ sagði Bjarkey og lagði jafnframt áherslu á langtímastefnumótun fyrir sjálfbæran sjávarútvegi sem taki mið af umhverfisvernd og hagkvæmari nýtinu auðlinda. Húnboðaði tillögu til þingsályktunar um verndun hafsins og frumvarp um verndarsvæði sem muni gegna lykilhlutverki. Markmið tillögunnar  sagði Bjarkey að vernda 30% hafsvæða innan efnahagslögsögu Íslands fyrir árið 2030 í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni.

Boðar hækkun veiðigjalda
Í lok ávarpsins gerði ráðherra sanngirni og veiðigjöld að umtalsefni.
„Endurskoðun þeirra er lykilskref í að tryggja sanngjarna hlutdeild samfélagsins í auðlindarentu sjávarútvegsins. Með hækkun veiðigjalda á tilgreindar uppsjávartegundir, stefnum við í átt að aukinni sanngirni og ábyrgð. Veiðigjöld eru jákvæð fyrir þjóðarbúið — þau stuðla að sanngirni, sjálfbærni og ábyrgri auðlindanýtingu. Þau tryggja að arðurinn af sameiginlegri auðlind renni til þjóðarinnar, styrkja opinbera þjónustu og hvetja til betri og sjálfbærari nýtingar. Þetta mál eins og önnur sem ég hyggst leggja fram í vetur byggir undir traust og ábyrgð í sjávarútvegi,” sagði Bjarkey.

Að opnunarathöfn lokinni gekk ráðherra ásamt forsvarsfólki Íslensku sjávarútvegssýningarinnar um sýningarsvæðið og heilsaði upp á sýnendur.

 

Deila: