Neyðarkall frá hafi

Björgunarsveitir auk þyrlu og flugvélar Landhelgisgæslunnar leituðu í dag af sér allan grun um að einhver væri í háska staddur eftir að útkall barst um klukkan hálf tíu í morgun. Kallið kom frá persónulegum neyðarsendi. Tveir punktar voru gefnir upp, annar við Meradali á Reykjanesskaga en hinn á hafi úti, suður af Þorlákshöfn.
Leitað var fram í myrkur án árangurs. Ekki er vitað til þess að neins sé saknað.