Vestmannaey svipt veiðileyfi í 2 vikur

Deila:

Vestmannaey VE-54, skip í eigu Bergs-Hugins ehf, hefur verið svipt veiðileyfi í tvær vikur í upphafi næsta árs. Þetta kemur fram í ákvörðun Fiskistofu. Afla var í lok síðasta árs ekið frá bryggju í bíl án þess að hafa viðkomu á hafnarvog. Þetta gerðist á Neskaupstað. Um var að ræða 10 tonn af ýsu.

Fiski­stofa seg­ir brot skipstjóra, sem ber ábyrgð á því að aflinn sé vigtaður, alvarlegt og meiriháttar. Ef ekki hefði upp komist hefði það leitt af sér verulegan ávinning fyrir málsaðila. Fyrir vikið sá stofnunin ekki ástæðu til að áminna eða veita lágmarksveiðileyfissviptingu þrátt fyrir að um fyrsta brot sé að ræða.

Útgerðin hefur sagt að um mannleg mistök hafi verið að ræða og hefur kært ákvörðunina til Matvælaráðuneytisins.

Togarinn hefur verið sviptur veiðileyfi frá 6. – 19. janúar.

Deila: