Um 700 bátar með strandveiðileyfi

Lokað hefur verið fyrir umsóknir um strandveiðileyfi. Þegar þetta er skrifað er búið að veita 699 bátum leyfi en einhverjar umsóknir kunna að vera óafgreiddar.
Sem fyrr verða langflestir bátar á svæði A.
- Svæði A 315
- Svæði B 127
- Svæði C 86
- Svæði D 171
Veiðarnar hefjast 5. apríl.
Bátunum verða tryggðir 48 dagar í sumar, að sögn ráðherra, þrátt fyrir að það hafi enn ekki verið útfært.