Minnsta aflaverðmæti frá 2010

Deila:

Aflaverðmæti íslenskra skipa á öllum veiðisvæðum nam 133 ma. kr. í fyrra og dróst saman um 12,1% frá fyrra ári. Samdráttinn má að langmestu leyti skrifa á gengisþróun krónunnar en gengisvísitala krónunnar lækkaði um 10,6% milli ára. Aflaverðmætið hefur ekki mælst jafn lágt síðan árið 2010 þegar það nam tæpum 133 ma. kr. Samkvæmt Hagsjá Landsbanka Íslands

Af einstökum tegundum hafði loðnubrestur mjög mikil áhrif á breytingu heildaraflaverðmætis milli ára en aflaverðmæti loðnu lækkaði úr tæpum 10 ma. kr. niður í 2,7 ma. kr., eða um 7,3 ma. kr. Næstmestu áhrifin voru í aflaverðmæti þorsks en það dróst saman um 3 ma.kr. Þar á eftir komu karfi með 2,3 ma. kr. samdrátt og ýsa með 2,2 ma. kr. samdrátt. Af þeim tegundum þar sem aflaverðmætið jókst milli ára voru makríll og norsk-íslensk síld með sitthvorn hálfan milljarð króna.

Samdráttur loðnu skýrist fyrst og fremst af minni veiðum en þær drógust saman um 71% milli ára. Af öllum þeim tegundum sem veiddar eru af íslenskum skipum er loðnan sá fiskistofn sem skýrir mest af breytileikanum í aflaverðmæti á árabilinu 2005-2016 og er þar í sérflokki. Þar á eftir kemur makríll og síðan þorskur.

Lesa Hagsjána í heild

Hagsjá: Aflaverðmæti ekki minna síðan árið 2010

 

Deila: