„Búið að reka okkur öll“

Deila:

„Þetta er ekki flókið, það er bara búið að reka okkur öll,“ segir Elsa Hrönn Gísladóttir, fiskverkakona á Akranesi, í samtali við visir.is en henni var sagt upp vinnunni sinni hjá HB Granda í dag.

Alls missa 86 manns vinnuna þegar botnfiskvinnslunni verður lokað á Skaganum  þann 1. september næstkomandi og sameinuð vinnslunni í Reykjavík. Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri fyrirtækisins, tilkynnti starfsmönnum þetta á fundi á fjórða tímanum í dag.
„Hann stendur þarna uppi og segir við okkur að það séu einhver störf í boði í reykjavík en getur ekki svarað hversu mörg störf það eru hann hefur engin svör,“ segir Elsa sem kveðst ekki bjartsýn á að fá vinnu.
„Þetta er mjög erfitt. Bara eins og það að það er fullt af mömmum þarna inni og hvað eigum við að gera við börnin okkar þegar vinnslan byrjar í Reykjavík klukkan kannski sex á morgnana? […] Þetta er bara kjánalegt, það er illa að þessu staðið og það eru bara allir ósáttir.“
Hún segir að fólki hafi ekki verið mjög brugðið á fundinum.
„Við fengum  bara staðfestingu á okkar grun. […] En það er allt svo óljóst, við fengum engin almennileg svör þannig að það er fólk þarna uppi sem er að bíða eftir einhverjum svörum. Þetta er bara ekki gott fyrir svona pláss,“ segir Elsa.
Um 270 starfsmenn starfa nú hjá HB Granda og dótturfélögum á Akranesi.
Mynd og texti af visir.is

 

Deila: