Rækja með spergilkáli
Nú prufum við eitthvað aðeins framandi. Við erum vön íslensku rækjunni (pandalus borealis). Hana notum við líklega mest í salat eða blandaða fiskrétti. Hlýsjávarrækjan er mun stærri en okkar rækja og gefur því meiri möguleika í matreiðslu. Hér kemur einn flottur réttur sem byggist á slíkri rækju og er virkilega bragðgóður og líklega hollur líka.
Innihald:
1 bolli hvít hrísgrjón
500g hlýsjávarrækjur, ósoðnar, skelflettar og garnhreinsaðar
1 msk kornsterkja (sósujafnari)
Salt og nýmalaður pipar
3 msk matarolía
2 til 3 hvítlauksrif, marin
Tveir bollar spergilkáli
½ rauð paprika, skorin í teninga
¼ bolli sojasósa
2 msk hrísgrjónaedik
1 tsk hunang
ristuð sesamfræ
Aðferð:
- Sjóðið grjónin samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Blandið rækjunni saman við kornsterkjuna í skál og látið standa í 5 mínútur.
- Blandið saman í skál hráefnum í sósuna, sojasósu, hrísgrjónaediki og hunangi.
- Setjið vokpönnu eða venjulega pönnu á háan hita. Setjið eina msk. af olíu út á og steikið síðan rækjurnar í 4-5 mínútur, eða þar til þær verða örlítið stökkar. Kryddið eftir smekk með salti og pipar. Færið rækjurnar svo yfir í skál og leggið til hliðar.
- Bætið 2 msk. af olíu út á sömu pönnu og steikið hvítlaukinn þar til hann verður gullinn. Bætið þá spergilkáli og papriku út á og steikið í eina mínútu.
- Setjið þá rækjurnar aftur á pönnuna og hellið sósunni yfir. Hrærið vel í og látið malla í eina mínútu, eða þar til spergilkálið er orðið mjúkt. Takið pönnuna af hitanum, stráið sesamfræi yfir og berið fram með hrísgrjónum.