Grillaður lax

Deila:

Nú grillum við lax, en flestan feitan fisk er einfalt að grilla í og staðinn fyrir laxinn er hægt að nota væna bleikju eða lúðu. Einföld og verulega góð uppskrift sem við hvetjum fólk til að prófa. Það er nefnilega hægt að grilla svo margt. Lax er afskaplega hollur fiskur vegna mikils innihalds omega3 og fleiri vítamína.

Innihald

Salt og pipar
Olía
Handfylli af salati
800 g lax
1 mangó, afhýtt og grófrifið
1 grilluð rauð paprika, skorin í strimla

Rjóma mangó-sósa
Ögn af karrídufti
1 dós sýrður rjómi, 18%,
1 mangó, afhýtt og skorið í litla bita
1 límóna, safi og fínrifinn börkur

Aðferð

Hitið grillið vel. Smyrjið olíu á grillgrindurnar og á fiskinn. Gott er að nota fiskiklemmu undir flakið. Grillið laxinn í 3–4 mínútur, fyrst á roðlausu hliðinni og síðan 3–4 mínútur á roðhliðinni.
Saltið og piprið og berið strax fram heitt með rjóma-mangó-sósunni, rifnu mangói, grillaðri papriku og handfylli af salatblöðum.
Búið sósuna til með því að mauka allt saman með rafmagnssprota eða í matvinnsluvél.
Meðlæti að öðru leyti er að eigin vali og sama má segja um drykk með matnum.

Deila: