Fjörugur föstudagur í Þorbirni

Deila:

Sjávarútvegsfyrirtæki Þornbjörn hf. Í Grindavík býður gestum og gangandi upp á fisk og franskar föstudaginn 25. Nóvember. Boð af þessu tagi hefur verið fastur viðburður á “Fjörugum föstudegi” í Grindavík í lok nóvember. Á þeim degi bjóða fyrirtæki í bænum í heimsókn og kynna þar starfsemi sína og bjóða upp á ýmislegt.

Stærsti viðskiptavinur Þorbjarnar í London sem á og rekur yfir 40 veitingastaði sem selja fisk og franskar, sendir til Grindavíkur sína færustu djúpsteikjara til að matreiða fiskinn frá Þorbirni ofan í gesti.
Opið verður hjá Þorbirni að Hafnargötu 20, Arnarvík, frá klukkan 16.00 til 20.00. Helgi Björns og Stefán & og The Backstabbing Beatles taka lagið.

Deila: