Hægt að fá grásleppuleyfi samdægurs
Fiskistofa hefur opnað fyrir umsóknir um leyfi til grásleppuveiða. Á vef stofnunarinnar segir að einyrkjar og prókúruhafar sæki um leyfið í gegnum stafrænt umsóknarkerfi á island.is og gildi reglugerð um hrognkelsaveiðar árið 2023 um veiðarnar.
Fiskistofa vekur athygli á því að nú er greitt fyrir leyfið í umsóknarferlinu og því hægt að fá leyfið gefið út samstundis, nema önnur upphafsdagsetning sé valin.
Við gildistöku er leyfið sent í pósthólf viðkomandi á islands.is. Áður þurfti að sækja um með að minnsta kosti dags fyrirvara eða á föstudegi ef hefja átti veiðar á mánudegi.
Hægt er að fá frekari upplýsingar um umsóknarferlið með því að senda tölvupóst á fiskistofa@fiskistofa.is. Einnig skal senda póst á þetta netfang ef breyta á upphafsdagsetningu leyfis.