Gullver með 100 tonn og á leið í vélarupptekt

Deila:

Gullver NS landar 101 tonni af ýsu og þorsk á Seyðisfirði í dag. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Í aflanum er einnig dálítið af karfa og ufsa. Haft er eftir Þórhalli Jónssyni skipstjóra að túrinn hafi hafist á ufsaleit. Það hafi ekki gengið vel.

„Ýsuna fengum við síðan á Stokksnesgrunni og þorskinn á Verkamannabankanum. Verkamannabankinn er alveg við færeysku miðlínuna. Það var veðurblíða allan túrinn. Nú verða veiðarfærin tekin í land og skipið heldur síðan til Færeyja í vélarupptekt. Reiknað er með að upptektinni ljúki undir mánaðamót, en síðan er ráðgert að haldið verði á ný til veiða 12. ágúst. Það er því frí framundan hjá skipshöfninni,” segir Þórhallur.

Deila: