„Þetta er brjálæði“

Deila:

Smábátamönnum er brugðið nú, þegar þeir fá reikninginn fyrir veiðigjaldið fyrir Septembermánuð. Gjaldið fyrir þorsk og ýsu hefur meira en tvöfaldast frá síðasta fiskveiði ári og er nú orðið um 9% af  verði á þessum tegundum upp úr sjó. Um þetta er fjallað í færslu á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda þar sem segir svo:

„Landssamband smábátaeigenda hefur talað fyrir daufum eyrum þegar vakin hefur verið athygli á yfir hundrað prósenta hækkun veiðigjalda í þorski og ýsu.  Alþingismenn virtust og virðast þó hafa á hreinu að eitthvað þarf að gera til að koma til móts við litlar og meðalstórar útgerðir.  LS hefur bent á leið sem hægt er að fara og væntir þess að nýkjörnir alþingismenn láti málið til sín taka strax og þingstörf hefjast.

Breyttar reglur um greiðslu veiðigjalds kveða á um að gjalddagi sé 1. dag hvers mánaðar vegna veiða þar síðasta mánaðar.  M.ö.o. reikningur sem útgerðir hafa fengið sendan og er á gjalddaga 1. nóvember er fyrir afla sem veiddur var í september.

Af samtölum við smábátaeigendur í dag er ljóst að mönnum er brugðið.  Aflinn að mestu þorskur og ýsa þar sem veiðigjald hækkaði um 107% og 127% milli ára.  Algengt er að gjaldið nú sé á milli 8,5 og 9% af aflaverðmæti.  Fullyrða má að alþingismenn sem samþykktu lög um veiðigjald hafa ekki gert ráð fyrir að gjaldið gæti numið svo háu hlutfalli af aflaverðmæti sem nú blasir við.

Hér á eftir eru setningar sem hrutu af vörum smábátaeigenda í dag sem tjáðu sig um reikninginn.

„Þetta gengur ekki upp“

„Veiðigjaldið er 8,9% af því sem ég fékk fyrir aflann í september“

„Við erum 2 um borð, nú hefur fjölgað um einn og hálfan háseta sem ekki láta sjá sig, en þiggja fulla greiðslu“

„Þetta er brjálæði“

„Ég er að gefast upp“

Gríðarlega erfið staða sem kallar á tafarlaus viðbrögð ef ekki á illa að fara.“

 

 

Deila: