Þorskurinn meira unninn erlendis

Á fyrstu 8 mánuðum ársins hafa verið flutt út rúm níuþúsund tonn af ferskum heilum þorski til vinnslu erlendis. Er það 35% aukning frá sama tíma í fyrra þegar magnið magnið nam 6.701 tonni. Frá þessu er greint á vef Landssambands smábátaeigenda. Þar segir að útflutningsverðmæti nú nemi 5,3 milljörðum, sem sé aukning um 1,2 milljarða á milli ára.
Fram kemur að helsti kaupandi þorsks séu Þjóðverjar, en þeir hafi keypt 24%. Fimmtungur fór til Hollands og Bretar svipað. „Hér er um nokkur tíðindi að ræða þar sem Bretar hafa lengst af vermt fyrsta sætið. Voru t.d. með 46% alls útflutningsins árið 2022.
Mikill munur var á verði hvers kílós hjá þessum þremur þjóðum. Hollendingar greiddu hæsta verðið og var það um 37% hærra en heill þorskur seldist á til Þýskalands.”