Hafró fær fjarstýrðan kafbát

Hafrannsóknastofnun fékk í dag afhendan nýjan fjarstýrðan kafbát í þeim tilgangi að auka möguleika til rannsókna í fjörðum og flóum umhverfis landið og gera þeim betri skil en tæki af þessu tagi hafa verið nefnd djúpkannar til að forðast samanburð við stærri og mannaða kafbáta. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar.
Þar segir að um sé að ræða fjarstýrðan djúpkanna af gerðinni Revolution. Kanadíska fyrirtækið Deep Trekker framleiðir gripinn, sem mun vera einn sá tæknilegasti sinnar tegundar hér á landi. „Her sérlega vel útbúin búnaði sem hentar verkefnum stofnunarinnar. Hann er búinn 4K upptökuvél, tveimur laserum og fjórum led ljósum og mun safna myndefni af hafsbotni. Myndefnið verður notað við ýmsar rannsóknir, til dæmis kortlagningu búsvæða, skráningar á lífríki og botngerð, mat á áhrifum og margt fleira. Griparmur fylgir með sem veitir möguleika á söfnun sýna. Með þessu tæki opnast margir nýir möguleikar sem leiða til aukinnar þekkingar á grunnsævi í kringum landið.”
Fram kemur að kanninn sé 26 kíló að þyngd og komist á 300 metra dýpi. Hann er búinn sex seguldrifun skrúfum sem ráða við allt að 4 hnúta straum. Hann gengur fyrir tveimur batteríum og duga í allt að 6 klst en auk þeirra var keyptur búnaður sem beintengir bátinn við aflgjafa á yfirborðinu svo notkunartími takmarkast aðeins af aðstæðum tengdum ytri aflgjafa.