Gífuryrði, brigslyrði og fúkyrðaflaumur skili engu

„Málefnaleg og uppbyggileg umræða um sjávarútveg er okkur öllum holl. Gífuryrði, brigslyrði og fúkyrðaflaumur skilar engu og er engum til framdráttar.”
Þetta segir Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar, í bréfi til hlutahafa félagsins. Bréfið er birt á vef Síldarvinnslunnar.
Í bréfinu fer Gunnþór yfir það sem hann kallar vanhugsaðar og illa útfærðar tillögur um skattahækkanir sem ekki þoli skoðun, í stað rökstuðnings og gagna.
Gunnþór segir að Síldarvinnslan hafi alltaf verið gagnsæ um rekstur sinn og því sé lítið mál að fjalla um rekstur og fjárfestingar Síldarvinnslunnar.
„Á undanförnum ellefu árum hefur Síldarvinnslan fjárfest fyrir 79,8 milljarða króna í nýjum skipum, verksmiðjum, eldi og búnaði og tækjum vegna veiða og vinnslu. Fjárfestingar sem tengjast ekki starfsemi félagsins með beinum hætti eru 200 milljónir í verkefnum í nærsamfélaginu í Fjarðabyggð, sem ég mun gera nánar grein fyrir hér neðar, en þessar fjárfestingar styðja engu að síður við stoðkerfi félagsins í heimabyggð.”