Stuðningur við veiði­gjalda­frum­varpið eykst

Deila:

Auglýsingaherferð Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) virðist hafa snúist í höndunum á samtökunum ef marka má nýjustu könnun Maskínu. Herferðin, sem gagnrýnir fyrirhugaða hækkun ríkisstjórnarinnar á veiðigjöldum, hefur leitt til aukins stuðnings við frumvarp atvinnuvegaráðherra, Hönnu Katrínar Friðriksson, um leiðréttingu veiðigjaldanna.

Samkvæmt könnuninni telja 66% svarenda að auglýsingar SFS hafi haft neikvæð áhrif á málstað samtakanna. Þá hefur stuðningur við frumvarpið aukist úr 63% í mars í 69% nú, sem er 6 prósentustiga hækkun.

Helmingur svarenda, eða 50,5%, eru mjög hlynntir frumvarpinu, 18,5% eru fremur hlynntir, á meðan 9,7% eru mjög andvígir og 8,2% fremur andvígir.

Stuðningur við frumvarpið er mestur meðal kjósenda vinstriflokkanna; 96,8% stuðningsmanna Vinstri grænna og 92,3% Samfylkingarinnar eru hlynntir. Einnig eru 87,6% stuðningsmanna Viðreisnar, flokks atvinnuvegaráðherra, hlynntir frumvarpinu. Andstaðan er sterkust meðal Sjálfstæðismanna, þar sem 62% eru andvígir frumvarpinu og aðeins 18% hlynntir.

Þá vekur athygli að yngsti aldurshópurinn, 18-29 ára, er andvígastur frumvarpinu eða 24,5%. Reykvíkingar eru mest hlynntir breytingunum (76,7%) en íbúar Austurlands sýna mestu andstöðuna (33,3%).

Deila: