Jón Birgir ráðinn framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála hjá Skaganum 3X og Baader Íslandi

Deila:

Jón Birgir Gunnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri sölu og markaðsmála (CSO) hjá Skaganum 3X og Baader Íslandi, sem eru bæði í eigu þýsku Baader samstæðunnar.

„Jón Birgir er reyndur stjórnandi með farsæla reynslu úr sjávarútvegstækni. Hann þekkir vel til Skagann 3X en hann stýrði færsælli uppbyggingu á nýju vörumerki og ásýnd félagsins þegar hann leiddi sölu og markaðsmál á miklu vaxtaskeiði fyrirtækisins á árunum 2016 til 2019,“ segir í tilkynningu Skagans 3X.

Jón Birgir mun bera ábyrgð á því að tryggja betra aðgengi íslenska markaðsins að tækninni sem Baader og Skaginn 3X bjóða upp á. „Á sama hátt er mikilvægt að koma þeim krafti og hraða sem íslenski bransinn er þekktur fyrir inn í vörustjórnun hjá fyrirtækinu og flýta þannig fyrir nýsköpun og auka umfang þróunar og framleiðslu hjá Skaganum 3X hér á landi.“

„Það verður skemmtilegt verkefni að halda uppi þeim krafti sem íslenska teymið býr yfir og ná jafnframt fram þeim mikilvæga áreiðanleika sem BAADER stendur fyrir. Ég er gríðarlega spenntur fyrir því að fá að vera í mikilvægu leiðtogahlutverki í þessu sterka félagi, enda tel ég þetta vera einingu sem mun leiða bransann til framtíðar þar sem ekkert annað íslenskt fyrirtæki er með fleiri sérhæfða starfsmenn sem einbeita sér eingöngu að sjávarútvegstækni,“ segir Jón Birgir Gunnarsson.

„Með ráðningu á Jóni Birgi erum við að styrkja en frekar stöðu okkar á íslenska markaðnum sem og þekkingu okkar á framúrskarandi hvítfisk og uppsjávarkerfum til hagsbóta fyrir viðskiptavina okkar. Ástæðan fyrir því að hann er kominn aftur í teymið er að ég er sannfærður um að hann muni gera góða hluti fyrir viðskiptavini okkar og þær vörur sem seldar eru undir vörumerkjum Baader,“ segir Robert Focke, framkvæmdastjóri Baader Fish.

 

 

Deila: