Málefni hafsins ofarlega á blaði

Deila:

Málefni hafsins verða ofarlega á blaði á ráðstefnu um loftslagsmál aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna, sem nú stendur yfir í Madrid. Formennska í viðræðunum er nú í höndum Síle, sem hefur sett sérstaka áherslu á málefni hafsins í loftslagsumræðunni. Til stóð að halda ráðstefnuna í Santiago í Síle, en hætt var við það vegna óeirða þar og fundurinn fluttur til Madrídar. Formennska er eftir sem áður í höndum Síle.

Íslensk sendinefnd er nú komin til Madrid á Spáni þar sem 25. ráðstefna aðildarríkja Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (COP25) var sett í gær.

Meginverkefni fundarins er að ljúka við regluverk um innleiðingu Parísarsamningsins, en þar ber hæst reglur varðandi 6. grein Parísarsamningsins um samvinnu ríkja um losunarmarkmið, auk tæknilegrar vinnu varðandi bókhald og skýrslugjöf. Jafnframt verður á fundinum fjallað um málefni frumbyggja í samhengi við loftslagsbreytingar og aðlögun að loftslagsbreytingum.

Ráðherravika fundarins hefst næstkomandi mánudag og mun Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, sækja fundinn fyrir Íslands hönd.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna á vef Loftslagssamningsins.

 

Deila: