Heildarafli árið 2016 var 1.070 þúsund tonn

Deila:

Afli íslenskra skipa árið 2016 var 1.069,6 þúsund tonn sem er 247 þúsund tonnum minna en landað var árið 2015 samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Samdrátt í aflamagni á milli ára má nær eingöngu rekja til minni loðnuafla en ríflega 101 þúsund tonn veiddust af loðnu á síðasta ári samanborið við tæp 353 þúsund tonn árið 2015. Samdráttur í afla uppsjávartegunda var 32% á milli ára en alls veiddust tæp 576 þúsund tonn af uppsjávartegundum. Botnfiskafli nam 457 þúsund tonnum á síðasta ári sem er 4% aukning miðað við fyrra ár. Að venju er þorskaflinn uppistaðan í botnfiskaflanum en tæp 264 þúsund tonn veiddust af þorski á síðasta ári sem er 8% meira en árið 2015. Flatfiskaflinn var svipaður á milli ára og var tæp 24 þúsund tonnum á síðasta ári. Afli skel- og krabbadýra nam 12,7 þúsund tonnum sem er jafngildir 26% aukningu miðað við árið 2015.

Í desembermánuði var fiskaflinn rúm 59 þúsund tonn sem er 20% meiri afli en í desember 2015. Aukið aflamagn í desember skýrist af auknum uppsjávarafla, en afli uppsjávartegunda, kolmunna og síld, var 15 þúsund tonnum meiri en í desember 2015. Samdráttur varð hinsvegar í öðrum aflategundum, botnfiskafli dróst saman um 14%, flatfiskafli um 41% og skel- og krabbadýraafli um 28%.

Þrátt fyrir aukið aflamagn í desember má gera ráð fyrir að verðmæti aflans í desember hafi dregist saman um 5,5% sem skýrist af aflasamdrætti verðmætari tegunda.

Fiskafli
  Desember   Janúar-desember  
  2015 2016 % 2015 2016 %
Fiskafli á föstu verði            
Vísitala         57,9             54,7     -5,5 88,2 84,0 -4,8
             
Fiskafli í tonnum            
Heildarafli 49.775 59.482 20 1.317.143 1.069.595 -19
Botnfiskafli 30.583 26.365 -14 438.064 456.929 4
  Þorskur 19.773 15.908 -20 244.463 264.355 8
  Ýsa 3.292 2.287 -31 40.994 38.580 -6
  Ufsi 2.083 2.630 26 48.217 49.631 3
  Karfi 3.371 4.094 21 58.508 63.651 9
  Annar botnfiskafli 2.064 1.446 -30 45.882 40.712 -11
Flatfiskafli 1.364 803 -41 23.540 23.939 2
Uppsjávarafli 17.480 32.064 83 845.415 575.921 -32
  Síld 8.697 13.212 52 109.355 117.398 7
  Loðna 0 0 352.866 101.089 -71
  Kolmunni 8.783 18.852 115 214.870 186.915 -13
  Makríll 0 0 168.279 170.514 1
  Annar uppsjávarfiskur 0 0 45 5 -88
Skel-og krabbadýraafli 348 250 -28 10.069 12.720 26
Annar afli 0 0 54 86 57

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

 

Deila: