Minni grásleppuveiði á heimsvísu

Deila:

Á árlegum upplýsingafundi – LUROMA – um grásleppumál sem haldinn var í London kom meðal annars fram að grásleppuvertíðin 2016 skilaði 19% minni afla en vertíðin þar á undan.  Mestu munaði um 30% samdrátt í veiðum Grænlendinga.  Þar vantaði 2.400 tunnur upp á það magn sem kom af vertíðinni 2015, samkvæmt frétt á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda.

Heimsveiðin í fyrra skilaði alls um 18 þús. tunnum sem er rúmum fjögurþúsund tunnum færra en 2015.  Hér á landi varð einnig samdráttur í veiðum milli ára.  Alls var saltað í rúmar 10.300 tunnur sem var 15% minnkun.
Hlutdeild þjóðanna í veiðunum 2016 má sjá á skífuritinu hér að neðan.

Grásleppuveiði

 

 

Deila: