Skrifstofa sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra flytur tímabundið á Ísafjörð

Deila:

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mun flytja skrifstofu sína tímabundið vestur á Ísafjörð dagana 13. 14. og 15. febrúar næstkomandi. Með ráðherranum í för verður m.a. ráðuneytisstjóri og aðstoðarmaður ráðherra.

Ráðherrann verður með viðtalstíma á Ísafirði milli kl. 08:30 og 12:00 þriðjudaginn 14. febrúar nk. í fundarsal Háskólaseturs Vestfjarða í Vestrahúsi, Árnagötu 2-4, 400 Ísafirði.

Óskir um viðtöl skulu berast á netfangið gudny.steina.petursdottir@anr.is

Tilgangurinn með flutningunum er að heimsækja fyrirtæki og stofnanir og styrkja tengsl ráðuneytisins við sveitarfélög utan höfuðborgarsvæðisins. Áætlað er að skrifstofan flytji tímabundið út á land þrisvar til fjórum sinnum á ári.

 

 

Deila: