Síldarvinnslan færir LungA – skólanum gamla netagerðarhúsið að gjöf

Deila:

Síldarvinnslan hefur afhent LungA – skólanum á Seyðisfirði gamla netagerðarhúsið á staðnum að gjöf. Húsið er stórt en gamalt og þarfnast verulegs viðhalds. LungA- skólinn er alþjóðlegur listaskóli sem hefur fest rætur og setur mikinn svip á bæjarlífið á Seyðisfirði yfir vetrarmánuðina.

Lasse Høgenhof skólastjóri sagði í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar að það væri ómetanlegt fyrir skólann að eignast gamla netagerðarhúsið. „Það er draumur að rætast með því að skólinn eignist þetta hús og við erum Síldarvinnslunni afar þakklát fyrir gjöfina. LungA – skólinn hefur starfað í þrjú ár og hefur vaxið og dafnað. Innan skólans er sinnt alls konar list og eitt af því sem skólinn þarf er mikið rými og það fáum við í gamla netagerðarhúsinu. Í húsinu verður komið upp fjölbreyttum vinnustofum sem munu nýtast skólanum afar vel. Auðvitað er húsið gamalt og það þarf að bæta útlit þess en það er verkefni sem þarf að fást við síðar. Það er í einu orði sagt frábært fyrir skólann að fá þessa gjöf,“ sagði Lasse Høgenhof.

Gunnþór B. Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar sagði að það væri ánægjulegt að gamla netagerðarhúsið gæti komið að gagni. „Við höfum fylgst með starfi Lunga – skólans og það er einstaklega metnaðarfullt. Síldarvinnslan vill styðja við bakið á skólanum og hvetja hann til góðra verka og það er frábært að geta orðið að liði og stuðlað að eflingu hans. Það er okkar von að skólinn dafni og honum nýtist þetta húsnæði til kennslu og listsköpunar,“ sagði Gunnþór.

Myndin er frá afhendingu gömlu netagerðarinnar. Talið frá vinstri: Gunnar Sverrisson verksmiðjustjóri, Lasse Høgenhof skólastjóri, Gunnþór B. Ingvason framkvæmdastjóri og Snorri Jónsson framleiðslu- og yfirverkstjóri. Ljósm. Hákon Ernuson

 

Deila: