Góð afkoma, miklar fjárfestingar, minni skuldir

Deila:

Hagnaður VSV-samstæðunnar nam tæplega 12,4 milljónum evra á árinu 2016 en var tæplega 10 milljónir evra árið áður. Þetta kom fram á aðalfundi Vinnslustöðvarinnar hf. Í gær og er skýrt frá afkominni á heimasíðu VSV.

Rekstur og starfsemi Vinnslustöðvarinnar gekk vel 2016. Afkoman félagsins var sú æstbesta frá upphafi.

Framlegð samstæðunnar (EBITDA)  var 20,4 milljónir evra, nánast hin sama og 2015.

Eigið fé jókst um 9% og eiginfjárhlutfall er nú 38%.

Fjárfestingar voru miklar á árinu. Nýtt uppsjávarvinnsluhús var tekið í notkun, nýr togari er í smíðum í Kína og skip voru seld og keypt. Framkvæmdakostnaður var 18,4 milljónir evra, að frádregnu söluverði skipa.

„Leiðarljósið er að láta byggðina í Vestmannaeyjum njóta góðs af arðsömum rekstri og fjárfestingum VSV og styrkja þannig stoðir samfélagsins heima fyrir.

Þrátt fyrir miklar fjárfestingarnar minnkuðu heildarskuldir og skuldbindingar VSV um 3% vegna þess að handbært fé frá fyrri árum var notað til að takast á við nýfjárfestingarnar. Handbært fé dróst að sama skapi saman í reikningum félagsins eða um ríflega 60%.

VSV tók engin langtímalán á árinu en greiddi 12,4 milljón evrur af langtímaskuldum sínum.

Aðalfundurinn samþykkti að greiða hluthöfum 8 milljónir evra í arð, sem svarar til 5% af áætluðu markaðsvirði hlutafjár. Þetta er fjórða árið í röð sem hluthafar VSV ákveða að greiða sér arð upp á 8 milljónir evra,“ segir á síðunni.

Guðmundur Kristjánsson í stjórn

Fjórir stjórnarmenn fimm voru endurkjörnir á aðalfundinum: Einar Þór Sverrisson, Guðmundur Örn Gunnarsson, Íris Róbertsdóttir og Rut Haraldsdóttir. Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims var kjörinn í stjórn í stað Ingvars Eyfjörð.

Í varastjórn voru kjörnir Eyjólfur Guðjónsson og Hjálmar Kristjánsson en þriðji frambjóðandinn til varastjórnar, Guðmunda Bjarnadóttir, fór inn í varastjórn á kynjakvóta og var því endurkjörin líkt og Eyjólfur.

 

Deila: