Verðmætahrun í janúar vegna verkfalls

Deila:

Í janúar 2017 var aflaverðmæti íslenskra skipa 1,9 milljarðar króna, sem er 81% minna en í janúar 2016 og setur verkfall sjómanna þar strik í reikninginn. Engum uppsjávarafla var landað í janúar og verðmæti botnfiskafla, flatfiska og skeldýra var verulega mikið minna en í janúar í fyrra. Enginn afli var sjófrystur eða fluttur út í gámum í janúar, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands.

Á 12 mánaða tímabili frá febrúar 2016 til janúar 2017 var aflaverðmæti tæpum 26 milljörðum króna minni en á sama tímabili ári áður, sem reiknast sem 17,1% samdráttur.

Það voru einungis smábátar sem stunduðu veiðar í verkfallinu og því varð heildaraflinn þá aðeins 7.610 tonn. Það er rúmlega einn tíundi fiskaflans í janúar 2016 eða 90% samdráttur, því í fyrra varð heildaraflinn 73.612 tonn. Þorskur og ýsa voru uppistaðan í aflanum í janúar í ár eða ríflega 7.100 tonn. Það sama á um verðmætin. Þessar tvær tegundir skiluðu 1,8 milljörðum af heildinni, sem var 1,9 milljarðar króna.

Á myndinni er verið að landa úr Hafdísi SU í Grindavík í gær. Ljósmynd Hjörtur Gíslason.

 

Deila: