319 bátar byrjaðir á strandveiðum

Deila:

Fyrsta vika strandveiða 2017 að baki og önnur hafin.  Samkvæmt nýjustu uppfærslu löndunartalna eru 319 bátar byrjaðir veiðar og er afli þeirra 433 tonn.  Aflann hafa þeir sótt í 651 sjóferð og er meðaltalið þannig 665 kg.

Að venju eru flestir strandveiðibátanna á svæði A 161 talsins, sem er þremur fleiri en samanlagður fjöldi á öðrum svæðum.

Strandveiðar maí

„Ánægjulegt hefur verið að fylgjast með fréttum fjölmiðla um strandveiðar.  Jákvæðni og gleði ríkir með að þær séu hafnar.   Þeir sem stunda veiðarnar eru allir sjómenn í húð og hár, komnir úr nánast öllum stéttum þjóðfélagsins.  Styrkur strandveiða felst ekki síst í þessari staðreynd, þar sem gríðarlega stór hópur varpar jákvæðri ímynd á okkar höfuðatvinnuveg – sjávarútveginn.

Brýnt að auka veiðiheimildir 

LS berst eins og endranær fyrir auknum aflaheimildum til strandveiða.  Óbreyttar reglur gildi en ekki komi til stöðvunar veiða eftir örfáa daga hvers mánaðar.

Atvinnuveganefnd hefur til meðferðar tvö frumvörp sem bæði ganga út á að efla veiðarnar.  Þá hefur sjávarútvegsráðherra bætt við heimildirnar um 200 tonn, en þar ætti að gera betur enda ljóst að rýmkun á ákvæði um tilfærslu veiðiheimilda milli ára er ávísun á minni þorskafla en gert var ráð fyrir.  Þannig hefur myndast ákveðið svigrúm fyrir ráðherra að auka aflaviðmiðun til strandveiða og annarra dagróðraveiða sem flestir eru háðir leigukvóta og nutu því ekki verðlækkunar sem glitti í áur en tilfærsluprósenta milli ára var hækkuð úr 15 í 30%,“ segir á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda.

 

Deila: