Þerney fer á úthafskarfa

Deila:

Samkvæmt reglugerð mega úthafskarfaveiðar íslenskra skipa hefjast í dag en í gær var enginn íslenskur togari kominn á veiðisvæðið úti við 200 mílna lögsögumörkin á Reykjaneshryggnum. Þar voru þá 13 erlendir togarar að veiðum rétt utan landhelgislínunnar en rússneskir togarar hafa stundað úthafskarfaveiðarnar frá því í byrjun apríl sl.

Úthafskarfakvótinn hefur verið skorinn hraustlega niður undanfarin ár og nú er svo komið að aðeins einn togari HB Granda, Þerney RE, mun stunda veiðarnar nú í byrjun sumars. Þerney er nú í höfn í Reykjavík en áhöfnin var að ljúka veiðiferð í norsku lögsöguna í Barentshafi með veiðum í lokin á Íslandsmiðum út af Suðausturlandi.
,,Það gekk allt að óskum. Veiðitímabilið á norska vertíðarsvæðinu við Lófót var lokið og við þurftum því að sækja þorskinn norður á Nordkap veiðisvæðið og þar norður af. Aflabrögðin voru góð og þorskurinn vænn og við vorum með rúmlega 700 tonn upp úr sjó eftir um þrjár vikur á veiðum,“ segir Ægir Franzson, skipstjóri á Þerney í samtali við heimasíðu HB Granda. Þar með lauk veiðum á þorskkvóta HB Granda í norsku landhelginni en eftir á að veiða kvóta ársins í rússnesku lögsögunni.

„Yfirleitt eru maí og júní góðir í rússnesku landhelginni og þar er t.a.m. fínasta veiði núna. Það verður þó einhver bið á því að farið verði eftir rússneska kvótanum,“ segir Ægir.
Sem fyrr segir var Þerney að veiðum á heimamiðum í lok veiðiferðarinnar og segir Ægir að aflinn hafi verið um 200 tonn á þeirri viku sem skipið var á miðunum.
,,Við vorum mest í Berufjarðarálnum og aflinn var aðallega ufsi og  karfi. Við fengum einnig grálúðu en grálúðuveiðin var ekki mikil,“ segir Ægir Franzson.

Deila: