Taka eitt hol á sólarhring

Deila:

Lítill kraftur hefur verið í kolmunnaveiðum í færeysku landhelginni að undanförnu. Að sögn Hjalta Einarssonar, skipstjóra á Víkingi AK, er togað lengi og aðeins híft einu sinni á sólarhring.

,,Við köstuðum fyrst að kvöldi 11. maí þannig að þegar við hífum í kvöld verðum við búnir að vera fjóra sólarhringa að veiðum. Aflinn hefur verið þetta 250 til 300 tonn í holi en mest höfum við komist upp í 370 tonn,“ segir Hjalti en er rætt var við hann á heimasíðu HB Granda var Víkingur staddur austur af Færeyjum ásamt fleiri íslenskum skipum. Nokkru sunnar voru fleiri skip, þar á meðal Venus NS, en töluvert austar, beint suður af Færeyjum, voru flest færeysku skipanna að veiðum auk rússneskra skipa.

,,Kolmunninn potast norður eftir en það er ekki hægt að segja að hann geri það í torfum eða stórum göngum. Þetta eru meira smá peðrur sem við erum að eltast við,“ sagði Hjalti Einarsson en hann reiknaði með því að skipið héldi til hafnar um leið og ásættanlegum skammti væri náð.

 

Deila: