Vilja bann við ræktun frjós eldislax í sjó

Deila:

„Aðalfundur Landverandar krefst þess að stjórnvöld móti skýra stefnu sem banni ræktun á eldislaxi í sjó nema tryggt sé að erfðablöndun geti ekki átt sér stað við íslenska laxastofna.“ Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar  Landverndar. Þar segir ennfremur:

„Þetta má tryggja með notkun ófrjórra stofna eða ræktun í lokuðum kerfum í sjó eða á landi. Auk þess þurfi að tryggja öflugt eftirlit með starfsemi fiskeldisfyrirtækja. Rannsóknir hafa sýnt að erfðablöndun eldislax við villta stofna Atlantshafslax hafi neikvæð áhrif á lífsferil og möguleika villtra stofna til að bregðast við breytingum í umhverfi til lengri tíma litið vegna erfðabreytinga. Áform um laxeldi í sjó við Íslandsstrendur nema um 185 þúsund tonnum á ári en er nú um átta þúsund. Langtímameðaltal slysasleppinga úr sjókvíum er um einn lax á hvert tonn sem myndi þýða um 185 þúsund laxar á ári sem slyppu eða meira en helmingi fleiri en stofnstærð villtra íslenskra stofna.“

Deila: