Heldur hægir á kolmunnaveiðinni

Deila:

Í gærkvöldi kom Beitir NK til Neskaupstaðar með 2.800 tonn af kolmunna og Hákon EA kom til Seyðisfjarðar með rúmlega 1.600 tonn. Nokkurra daga vinnsluhlé hafði verið hjá verksmiðjunum á báðum stöðum vegna skorts á hráefni.

Tómas Kárason, skipstjóri á Beiti, segir í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar, að nú sé farið að hægja heldur á veiðinni í færeysku lögsögunni. „Það er þó þannig að stundum reka menn í góð hol. Kolmunninn dreifir sér þegar hann kemur upp í kantana suður af Færeyjum og austan og vestan við eyjarnar og þá fer að hægjast á veiði,“ segir Tómas.

Beitir mun halda á ný til kolmunnaveiða að löndun lokinni.

Börkur NK er á landleið með 2.250 tonn af kolmunna og einnig Bjarni Ólafsson AK með 1.750 tonn. Börkur mun væntanlega landa á Seyðisfirði en Bjarni Ólafsson í Neskaupstað.

Myndin. Beitir NK kom með 2.800 tonn af kolmunna til Neskaupstaðar í gærkvöldi. Ljósm. Smári Geirsson

 

Deila: