Orlik fer, kemur og fer

Deila:

Rússneski togarin Orlik er farinn úr höfninni í Njarðvík, í bili að minnsta kosti. Togarinn var dreginn úr höfninni fyrir viku og er nú kominn til Hafnarfjarðar. Þar verður botn skipsins þéttur áður en það verður dregið erlendis í brotajárn. Orlik mun hins vegar koma aftur til Njarðvíkur á leið sinni í brotajárn og hafa þar viðkomu í hálfan mánuð, samkvæmt upplýsingum Halldórs Karls Hermannssonar, hafnarstjóra Reykjaneshafnar.

Frá þessu er sagt í nýjustu Víkurfréttum. Skipið hefur legið í Njarðvíkurhöfn frá því snemma árs 2014. „Togarinn hefur verið stærsta skipið í höfninni og gnæft yfir önnur skip. Síðustu ár hefur það verið hlutskipti Njarðvíkurhafnar að vera skipakirkjugarður þar sem gömul fiskiskip hafa borið beinin. Nokkur hafa einnig sokkið við bryggju en verið bjargað upp aftur með tilheyrandi kostnaði.

Hinn rússneski Orlik er í eigu Hringrásar en fyrirtækið ætlaði að rífa skipið í brotajárn líkt og það gerði með gamla varðskipið Þór og flutningaskipið Fernanda sem varð eldi að bráð. Hins vegar kom babb í bátinn þar sem skipið inniheldur bæði spilliefni og asbest og því fékkst ekki leyfi til þess að fleyta skipinu upp í fjöru í Helguvík og rífa það þar. Unnið hefur verið við hreinsun í togaranum í höfninni í Njarðvík síðustu vikur, auk þess sem gluggaopum var lokað á skrokki skipsins,“ segir í Víkurfréttum.
Ljósmynd Hjörtur Gíslason

Deila: