Ásbjörn RE kveður með stæl

Deila:

,,Við skruppum bara út á Fjöll og fiskuðum þar ufsa og karfa. Það var góður afli eða fullfermi, ríflega 120 tonn, en veiðiferðin var ekki nema tæpir þrír sólarhringar,“ segir Einar Bjarni Einarsson sem var skipstjóri á ísfisktogaranum Ásbirni RE í síðustu veiðiferðinni fyrir HB Granda. Þetta segir hann í samtali á heimasíðu HB Granda.

Að sögn Einars Bjarna var nýja skipið Engey RE í tilraunaveiðiferð á sama tíma þannig að kalla þurfti til afleysingamannskap til að manna Ásbjörn í túrnum.

,,Eðlilega fór harðasti kjarninn í áhöfninni í þennan túr með Engey en ég kvarta síður en svo yfir þeim mannskap sem ég fór með. Þetta voru mikið til strákar sem áður hafa leyst af á Ásbirni með góðum árangri undanfarin ár.“

Einar Bjarni segir að liðlega helmingur aflans í túrnum hafi verið milliufsi og svo virðist sem að ufsinn gefi sig meira til í ár en á sama tíma í fyrra.
Ásbjörn verður væntanlega afhentur nýjum eigendum nk. mánudag og Einar Bjarni segist vissulega sjá eftir þessu mikla aflaskipi. Sjálfur fór hann í sína fyrstu veiðiferð á Ásbirni árið 1989 en Ólafur heitinn Einarsson, bróðir Bjarna Einars og Friðleifs, aðalskipstjóra á Engey, var lengi 1. stýrimaður á Ásbirni í skipstjóratíð Magnúsar Garðarssonar.

,,Við vitum vel að allur aðbúnaður fyrir mannskapinn verður miklu betri um borð í Engey. Það er líka mun stærra og fullkomnara skip en Ásbjörn. Engey er sömuleiðis mjög tæknilega fullkomið skip og við erum undir það búnir að þurfa að læra margt upp á nýtt. Aðgerð aflans er þó óbreytt frá því sem verið hefur og það er sjálfsagt að gleðjast yfir því,“ segir Einar Bjarni Einarsson.

Deila: