Fyrsti makríllinn til Neskaupstaðar

Deila:

Vilhelm Þorsteinsson EA til Neskaupstaðar í vikubyrjun og landaði þar fyrsta makrílfarminum á vertíðinni. Afli skipsins var 700 tonn upp úr sjó og þar af voru 480 tonn fryst um borð. Guðmundur Jónsson skipstjóri sagði í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar, að veiðin hefði verið heldur döpur.

„Við hófum veiðar á Breiðdalsgrunni og héldum síðan vestur eftir og enduðum við Vestmannaeyjar. Austur frá var aflinn nokkuð síldarblandaður en vestast fengum við hreinan makríl. Það var enginn kraftur í þessu en fiskurinn sem fékkst var góður; stór og fínn makríll, lítilsháttar áta í honum en fituprósentan var 18-20%. Helsti gallinn er sá að það var ekki nóg af honum á þeim slóðum sem við vorum á en nú munu brátt fleiri skip halda til veiða og þá skýrist allt betur,“ sagði Guðmundur.

Ljósmynd: Hákon Ernuson

Deila: