Hörku kolmunnaveiði í íslenskri lögsögu

Deila:

Börkur NK landaði á sunnudag 2.200 tonnum af kolmunna í Neskaupstað. Skipið var 8 daga í veiðiferðinni og fór víða en megnið af aflanum fékkst í íslenskri lögsögu. Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri segir í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar, að kolmunninn hafi verið stór og fallegur.
„Við hófum veiðiferðina á að leita í Rósagarðinum í tvo daga með litlum árangri. Síðan var haldið í færeysku lögsöguna en þar hafði verið einhver veiði. Sáralítið fékkst þar þannig að við héldum aftur inn í íslensku lögsöguna og leituðum norðar en áður. Þar fundum við kolmunnann og var talsvert að sjá. Þetta var norðaustur af Rauða torginu, um 100 mílur nánast beint út af Norðfjarðarhorni. Aflinn sem þarna fékkst var góður, allt upp í 500 tonn á sólarhring. Við fengum því megnið af aflanum sem við komum með að landi á þremur og hálfum sólarhring á þessu svæði,“ sagði Hjörvar.

Börkur hélt til kolmunnaveiða á ný strax að lokinni löndun enda full ástæða til að nota tímann vel áður en makríl- og síldarvertíð hefst.

 

Deila: