Alvöru makrílstemning

Deila:

Í Neskaupstað er makrílvertíðarstemning hafin fyrir alvöru. Veiðiskipin koma og fara og flutningaskip lestar afurðir. Það er líf og fjör í höfninni. Sum veiðiskipanna koma með frystar afurðir sem unnar eru um borð og fara þær í frystigeymslur Síldarvinnslunnar. Önnur skip koma með kældan ferskan makríl til vinnslu í fiskiðjuverinu en þar starfa um 100 manns á þrískiptum vöktum. Fiskimjölsverksmiðjan tekur síðan á móti afskurði og öllu því sem flokkast frá við manneldisvinnsluna, en það er sáralítill hluti þess afla sem á land kemur. Frá þessu er sagt á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Bjarni Ólafsson AK kom með 160 tonn af makríl sl. föstudag og var sá afli nýttur til að prófa nýjan búnað í fiskiðjuverinu. Beitir NK kom síðan með 640 tonn á þriðjudag og þá hófst vinnsla af fullum krafti. Börkur NK kom síðan í gærmorgun með rúmlega 600 tonn, en Bjarni Ólafsson var þá miðunum. Venjulega gengur vertíðin svona fyrir sig; þess er ávallt gætt að nægur afli sé fyrir samfellda vinnslu og öll áhersla lögð á að hann sé nýveiddur og vel kældur. Gæði hráefnisins er það sem öllu máli skiptir.

Hálfdan Hálfdanarson, skipstjóri á Berki sagði að afli skipsins hefði fengist í fjórum stuttum holum ofarlega í Lónsdýpinu. „Það var töluvert að sjá þarna í gærkvöldi og ég held að bátarnir sem voru þarna hafi verið að fá þokkalegan afla. Það var hins vegar lítið að sjá fyrri partinn í gær. Löndun mun hefjast hjá okkur síðdegis en þá verður lokið við að landa úr Beiti,“ sagði Hálfdan.
Ljósmynd Smári Geirsson.

 

 

Deila: