Byrjaði 12 ára í saltfiski
Sveinn Ari Guðjónsson er maður vikunnar hjá okkur á Kvótanum þennan föstudaginn. Hann er frá Breiðdalsvík, en hefur lengi stafað hjá Vísi hf. Í Grindavík þar sem hann er framkvæmdastjóri saltaðra afurða. Hann var 12 ára þegar hann byrjaði að salta fisk.
Nafn?
Sveinn Ari Guðjónsson
Hvaðan ertu?
Fæddur og uppalinn á Breiðdalsvík.
Fjölskylduhagir?
Bý með minni konu Sólnýju Pálsdóttur og við eigu 5 stráka. Fyrir á ég 2 stúlkur og á 3 afabörn.
Hvar starfar þú núna?
Ég er framkvæmdastjóri saltaðra afurða hjá Vísi hf.
Hvenær hófst þú vinnu við sjávarútveg?
Ég byrjaði að vinna 12 ára í saltfiski þar sem ekki var ein vél, allt unnið í höndum. Saltað í stæður. Frábær upplifun sem er enn í blóðinu.
Hvað er það skemmtilegasta við að vinna við íslenskan sjávarútveg?
Sjávarútvegur hér er sá besti í heimi. Eftir að hafa ferðast um og séð hvað aðrir eru að gera er gaman að sjá hvað við erum góðir. Þannig allt sem ég geri í þessum geira er frábært.
En það erfiðasta?
Stanslaus óvissa um alla hluti. Gengi, ríkisstjórn og alla þætti sem hafa áhrif.
Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur lent í í störfum þínum?
Það er að þurfa að hafa vopnaða menn með trukkunum sem við seljum til suður Evrópu.
Hver eftirminnilegasti vinnufélagi þinn?
Hann heitir Óskar Hermannsson. Ótrúlegur frumkvöðull á öllum sviðum. Því miður látinn núna en hann lifir hjá mér. Stofnaði Arnarvík sem varð síðar Fiskanes hf.
Hver eru áhugamál þín?
Veiði, veiði, veiði. Bæði á stöng og byssu.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
Gott hreindýrakjöt er það besta.
Hvert færir þú í draumfríið?
Alltaf Ítalía.