Gott gengi í makrílnum fyrir þjóðhátíðarstopp

Deila:

Makrílvinnslan hófst fyrir um hálfum mánuði. Nú ríkja breyttir tímar með nýjum framleiðslutækjum og á fyrstu vikunum er ný flokkunarstöð „keyrð upp“ og ný pökkunarlína sömuleiðis í nýju vinnslu- og frystihúsi. „Mikil breyting, já svo sannarlega,“ segir Sindri Viðarsson sviðstjóri hjá Vinnslustöðinni í samtali á heimasíðu VSV.

„Skilvirkur og góður gangur í framleiðslunni, meiri afköst og betri vara. Makríllinn sjálfur er góður en  gangurinn í veiðunum er skrykkjóttur á köflum. Það hefur komið fyrir að vaktir hjá okkur hafa dottið út vegna hráefnisskorts.

Makríllinn veiðist núna við Snæfellsjökul og jafnvel enn norðar. Hingað til höfum við yfirleitt veitt við Eyjar fyrir þjóðhátíð en makríllinn hefur svo verið genginn vestar að þjóðhátíðarstoppi loknu. Svona gengur þetta hins vegar fyrir sig í ár.“

Það var og. Makríllinn hefur tekið þjóðhátíðina sem hegðunarviðmið ekki síður en sjálfir Eyjamennirnir sem veiða hann og frysta!

Dottið er nú á þjóðhátíðarlogn í flota og landvinnslu VSV. Síðasti vinnudagur var í gær og sá næsti að líkindum ekki fyrr en á fimmtudaginn í næstu viku.

„Menn hlupu nánast frá færiböndunum upp í Herjólfsdal í gær til að ná í stæði fyrir þjóðhátíðartjöldin sín. Svo byrjaði djammið og við gerum ráð fyrir að það fari vika í hátíðarhöldin og að jafna sig í framhaldinu!“ segir sviðsstjórinn – sem að sjálfsögðu hljóp sjálfur líka og gómaði lóð í Herjólfsdal fyrir sig og sína í kapphlaupi í dalnum

 

Deila: