Bátur brann í höfninni í Norðurfirði

Deila:

Báturinn Eyjólfur Ólafsson HU-100 sem er 7. tonna plastbátur brann til kaldra kola í höfninni í Norðurfirði í morgun. Eigandi bátssins Baldvin Gunnarsson ásamt tveim öðrum komu í land uppúr klukkan fjögur í nótt vegna brælu, en ætluðu út aftur seinna í morgun. Þeir skruppu í sundlaugina á Krossnesi til að slappa af í einhvern tíma, en fengu þá tilkynningu fyrir sjö að kviknað væri í bátnum.

Það var Lilja Björk Benediktsdóttir útibústjóri Kaupfélagsins á Norðurfirði sem varð vör við reyk og eld í bátnum fyrir sjö í morgun. Slökkvilið Hólmavíkur kom og slökkti eldinn, sem var lokið fyrir tíu í morgun. Einnig kom sjúkrabíll frá Hólmavík, en engin slasaðist því enginn var um borð þegar eldurinn blossaði upp. Eins og sjá má af myndunum var lítið eftir af bátnum um hálftíu í morgun þegar fréttamaður tók myndirnar.

Mynd og texti af fréttavef Árneshrepps, http://litlihjalli.it.is/forsida/

 

 

Deila: