Högum seglum eftir vindi

Deila:

Sjávarútvegsdagurinn, í samstarfi Deloitte, Samtaka atvinnulífsins og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, verður haldinn á morgun, þriðjudag, og ber yfirskriftina Högum seglum eftir vindi. Á honum verður m.a. rætt stöðu og horfur í íslenskum sjávarútvegi auk þess sem niðurstöður gagnagrunns Deloitte um afkomu sjávarútvegsins árið 2016 verða kynntar.

DAGSKRÁ:

Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra.

Jónas Gestur Jónasson, löggiltur endurskoðandi og meðeigandi Deloitte ehf.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.

Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA.

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð, stýrir fundi

Fundurinn verður haldinn í Silfurbergi í Hörpu og stendur frá 08.30 til 10.00.

Skráningar er þörf á heimasíðu Deloitte.

Ljósmynd Hjörtur Gíslason

Deila: