Kleifaberg með mest úr Barentshafi

Deila:

Níu íslenskir togarar hafa landað afla úr Barentshafi það sem af er árinu. Þorskafli þeirra er samtals rétt rúmlega 10.000 af slægðum þorski samkvæmt aflastöðulista Fiskistofu. Auk þessa er meðafli þeirra af örðum tegundum líklega nálægt 3.000  tonnum, en hann er ekki tíundaður á aflastöðulistanum. Leyfilegt er að vera með 30% meðafla af öðrum tegundum samtals.

Aflinn innan lögsögu Noregs er 6.860 tonn miðað við óslægt. Heimildirnar eru 22 tonnum meiri svo þangað er ekki meira að sækja á þessu ári. Aflinn í rússnesku lögsögunni er samkvæmt listanum 3.216 tonn af slægðum þorski og eru þá ónýttar heimildir upp á um 1.000 tonn. Það eru tvö skip, sem skráð eru fyrir megninu af þeim heimildum. Örfirisey RE með 538 tonn óveidd og Snæfell EA með 478 tonn óveidd. Örfirisey mun hefja veiðar í Barentshafinu á ný í desember, en skipið hefur verið frá veiðum nokkurn tíma vegna bilunar. Því gæti skipið farið langt með að saxa á kvóta sinn innan rússnesku lögsögunnar. Snæfell er á veiðum norður af Íslandi og ekki ljóst hvort skipið fer upp í Barentshafið að klára sinn skammt

Af þessum níu togurum er Kleifaberg RE með mest úr Barentshafinu. Þorskafli þess þar er 2.235 tonn af slægðum þorski auk meðafla. Skiptist hann nokkuð jafnt milli lögsagna Rússa og Norðmanna. Oddeyrin kemur næst með 1.719 tonn og er um þriðjungur þess tekinn Rússamegin, en hitt innan norsku lögsögunnar. Í þriðja sætinu er Þerney RE með 1.556 tonn, allt úr norsku lögsögunni. Sigurbjörg ÓF kemur svo næst með 1.518 tonn, þar af 540 úr rússnesku lögsögunni. Þá kemur Arnar HU með 1.230 tonn, þar af 439 tonn frá Rússum. Fimmta skipið, sem hefur landað afla úr úr rússnesku lögsögunni er Örfirisey með 625 tonn þaðan. Þá hafa þrjú skip eingöngu landað afla úr norsku lögsögunni, en þau eru Snæfell EA með 443 tonn, Gnúpur GK með 395 tonn og Sólbakur EA með 355 tonn.

Deila: