Alltaf vitlaust veður

Deila:

Venus NS og Víkingur AK eru í höfn í Kollafirði í Færeyjum en skipin leituðu þar vars undan illviðri sem nú er á kolmunnamiðunum norðan við Færeyjar. „Það er alltaf vitlaust veður og veiðarnar ganga því hægt,“ sagði Hjalti Einarsson, skipstjóri á Víkingi í samtali við heimasíðu HB Granda.

Að sögn Hjalta fóru Víkingur og Venus frá Vopnafirði sl. sunnudag en þangað höfðu skipin komið inn fyrr en ella vegna slæms veðurs í síðustu viku.

,,Við byrjuðum á heimamiðum úti af Austfjörðum og þann stutta tíma, sem hægt var að vera að veiðum vegna veðurs, var aflinn frekar lítill. Það var bara yfir daginn sem kolmunninn gaf sig til og því var ákveðið að freista gæfunnar á Færeyjamiðum. Þar var góð veiði á þessum tíma í fyrra en nú var aflinn frekar tregur. Reyndar er lítið að marka það því við gátum lítið verið að veiðum áður en veðrið spilltist. Við bíðum veðrið af okkur hér í Kollafirði en það á að ganga niður síðdegis á laugardag,“ segir Hjalti en að hans sögn var bara Hoffell SU að veiðum á svipuðum slóðum og Víkingur og Venus.

,,Færeyingarnir eru enn á síldveiðum úr norsk-íslenska síldarstofninum og íslensku skipin eru ýmist að veiða íslenska sumargotssíld eða bíða átekta eftir því að kolmunnaveiðin glæðist,“ segir Hjalti Einarsson.
 

 

Deila: