Fordæma „þá dæmalausu umgegni um sjávarauðlindina“

Deila:

Landssamband smábátaeigenda fordæmir þá dæmalausu umgengni um sjávarauðlindina sem fram kom í fréttaþættinum Kveik sem sýndur var í RÚV á Alþjóðadegi sjómanna 21. nóvember.

LS brýnir fyrir sjómönnum, fiskvinnsluaðilum og öllum þeim sem starfa við sjávarútveg að vanda sig í allri umgengni um sameiginlega auðlind þjóðarinnar. LS þrýsti á fyrrverandi sjávarútvegsráðherra um nauðsyn þess að breyta reglum um vigtun í byrjun árs 2014. Í umræðu á Alþingi 22. janúar það ár staðfesti hann að málið væri komið inn á þingmálalista yfirstandandi vorþings. Engar raunhæfar skýringar hafa verið gefnar hvers vegna frumvarp kom ekki fram. Nægur þingmeirihluti var að baki ríkisstjórn á þessum tíma og ólíklegt að málefnið hefði mætt andstöðu þingsins.

Á öllum stigum þessa máls hefur LS lýst stuðningi við hugmyndir stjórnvalda um breytingar á reglum um vigtun.

Þau þrjú ár sem liðin eru án aðgerða hafa leitt til óheilbrigðrar samkeppnisstöðu milli fyrirtækja og skaðað orðspor íslensks sjávarútvegs. Enn fremur hefur aðgerðaleysið haft áhrif á kjarasamninga sjómanna. Landssamband smábátaeigenda ætlar fjórða valdinu að draga fram í dagsljósið hver ber ábyrgð í þessu grafalvarlega máli sem á rætur sínar í slöku regluverki og ónógu eftirliti stofnunar sem stjórnvöld gerðu nánast óstarfhæfa með vanhugsaðri ákvörðun um staðsetningu.

 

Deila: