Hafa snúið vörn í sókn

Deila:

Móttökuathöfn vegna komu ísfisktogarans Viðeyjar RE 50 til landsins var haldin nú rétt fyrir jólin, en Viðey leysir Ottó N. Þorláksson af hólmi eftir tæplega 40 ára dygga þjónustu. Athöfnin fór fram í heimahöfn skipsins við Reykjavíkurhöfn. Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, bauð gesti velkomna og fjallaði um mikilvægi endurnýjunar flotans fyrir félagið ásamt því að hann þakkaði því góða fólki sem einna helst hefur unnið að smíði skipsins.

Viðey móttaka 1Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ávarpaði einnig gesti móttökunnar og fjallaði meðal annars um það að íslenskur sjávarútvegur hafi snúið vörn í sókn. Hann lagði áherslu á það hversu mikill ávinningur það er að fá ný skip með framúrskarandi tækni og tækjabúnað á millidekkjum og í lestarkerfum sem byggir á íslensku hugviti og ekki hvað síst á reynslu sjómanna. Meðferð aflans verði  mun betri og aðbúnaður áhafnar eins og best verður á kosið. Síðast en ekki síst sé Viðey, ásamt systurskipum hennar, Engey og Akurey, mun umhverfisvænni en þau eldri og að breytingunni megi líkja við byltingu. Hann óskaði HB Granda til hamingju með Viðey og sagði skipið vera góðan vitnisburð um þann kraft og sóknarhug sem einkennir HB Granda og um leið íslenskan sjávarútveg um þessar mundir.

Viðey Móttaka 3Karlakór Reykjavíkur söng síðan lag fyrir gesti og Líf Magneudóttir, forseti borgarstjórnar Reykjavíkurborgar óskaði félaginu til hamingju og nefndi í ávarpi sínu hversu vel við hæfi það væri að fá þrjú ný skip í Reykjavíkurhöfn á 100 ára afmæli gömlu hafnarinnar. Hún nefndi einnig mikilvægi sjávarútvegs í áranna rás og að sjávarútvegurinn muni áfram vera ein mikilvægasta atvinnugrein Íslendinga. Að lokum afhenti hún Ella skipstjóra og áhöfn skipsins gjöf í tilefni komu skipsins.

Viðey Móttaka 4 Viðey Móttaka 5Rannveig Rist, varaformaður stjórnar HB Granda, gaf skipinu síðan formlega nafn og Sr. Hjálmar Jónsson blessaði skipið. Eftir blessunina söng karlakórinn að nýju. Í lok athafnarinnar gafst gestum kostur á að skoða skipið og þiggja veitingar um borð undir ljúfum harmonikkuleik Margrétar Arnardóttur.

 

Deila: