Ráðherra heimsótti Fiskistofu

Deila:

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, heimsótti í gærmorgun höfuðstöðvar Fiskistofu í Borgum á Akureyri og fékk kynningu á starfsemi stofnunarinnar. Ráðherra ræddi við starfsfólk og skoðaði nýlegt húsnæði Fiskistofu.

Ráðherra fékk m.a. kynningu á fjareftirlitskerfi Fiskistofu sem stofnunin nýtir til þess að fylgjast með staðsetningu fiskiskipa.

Þá fékk ráðherra einnig kynningu á starfsemi Verðlagsstofu skiptaverðs en Fiskistofa hefur um nokkurra ára skeið annast rekstur skrifstofu Verðlagsstofu.

 

Deila: