Loðnufrysting fyrir Japani hafin af fullum krafti

Deila:

Seinni partinn í gær lauk vinnslu á loðnu úr Bjarna Ólafssyni AK í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar en hluti af afla hans fór í frystingu á Japansmarkað. Í gær dúraði á loðnumiðunum fyrir sunnan land og fengu mörg skipanna góðan afla.

Vilhelm Þorsteinsson EA kom til Neskaupstaðar í morgun með 1.480 tonn og verður hluti aflans frystur á Japan. Börkur NK kemur síðan í kjölfar Vilhelms með 1.430 tonn og er einnig ætlunin að afli hans fari í Japansfrystingu. Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri á Berki segir í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar, að þeir hafi fengið aflann í Skarðsfjörunni í fimm köstum. Hrognafylling loðnunnar sé 16-17% og hún ætti því að henta vel til Japansfrystingar. Telur Hjörvar að einhver möguleiki verði til veiða á morgun en annars sé veðurútlit slæmt við suðurströndina allavega fram á sunnudag.

Japaninn Kusayanagi og Líneik Haraldsdóttir fylgjast með  gæðum loðnunnar. Ljósm. Hákon Ernuson

Japaninn Kusayanagi og Líneik Haraldsdóttir fylgjast með gæðum loðnunnar. Ljósm. Hákon Ernuson

Polar Amaroq skipaði frystri loðnu um borð í flutningaskip í Norðfjarðarhöfn í gær en hélt síðan til veiða norður fyrir land þar sem norski loðnuflotinn hefur haldið sig. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Geir Zoëga skipstjóra á Polar Amaroq í morgun en þá voru þeir Polarmenn með fyrsta kast á Skjálfanda. „ Við fundum loðnu strax og við komum hér og erum að draga núna. Það er eitthvað í þessu hjá okkur. Loðnan stendur djúpt en Norðmennirnir segja að hún komi upp á kvöldin. Mér líst bara vel á þetta en það var veðurútlitið sem gerði það að verkum að við fórum hingað norður fyrir land. Hér verður blíða á morgun og eftir morgundaginn hverfa norsku skipin á braut. Þá verðum við einir hér. Hrognafyllingin í loðnunni hérna er um 15% og það hentar okkur vel,“ sagði Geir.

Eins og fram kemur hjá Geir er einungis einn dagur eftir af þeim tíma sem Norðmenn mega stunda loðnuveiðar við landið. Eru allar líkur á því að þeir muni nánast ljúka við að veiða þann kvóta sem þeir hafa til ráðstöfunar á þeim tíma.

 

Deila: