Auglýst eftir umsóknum um byggðakvóta
Fiskistofa auglýsir nú eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. ákvæðum reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2017/2018
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðarlögum, sbr. auglýsingu nr. 227/2018 í Stjórnartíðindum.
Norðurþing (Raufarhöfn og Kópasker)
- Sveitarfélagið Hornafjörður
- Vopnafjarðarhreppur
- Sveitarfélagið Ölfus (Þorlákshöfn)
- Árneshreppur
Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.
Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2018.