Lítill munur á ísprufum

Deila:

Fiskistofa birtir hér niðurstöður vigtana m.t.t. íshlutfalls hjá þeim vigtunarleyfishöfum þar sem veiðieftirlitsmenn Fiskistofu hafa viðhaft eftirlit með endurvigtun á tímabilinu 1. janúar til 28. febrúar 2018.

Taflan hér að neðan sýnir samanburð á vegnu meðalíshlutfalli hvers vigtunarleyfishafa og íshlutfallinu þegar  eftirlit var haft með vigtuninni.

  • Vegið meðalíshlutfall er íshlutfall vigtunar þegar tekið er tillit til heildarmagns sem vigtað er í öllum vigtunum  frá tilteknu skipi hjá viðkomandi leyfishafa.
  • Þessi tala er borin saman við íshlutfallið þegar eftirlitsmaður er viðstaddur endurvigtun og mismunurinn í prósentustigum er birtur.

Taflan sýnir einnig heildarafla sem viðkomandi skip landaði hjá vigtunarleyfishafanum á tímabilinu.

Ástæður  breytilegs íshlutfalls geta verið margvíslegar. Það er hlutverk Fiskistofu að hafa eftirlit með að vigtun á sjávarafla sé sem réttust. Til þess að rækja það hlutverk sem best beitir  Fiskistofa margvíslegum aðferðum og  má í því sambandi nefna samvinnu við útgerðir og vinnslur, áhættugreiningu og aðgengi allra að upplýsingum um veiðar og afla.

Ísprufur Fiskistofu

Skýringar: 

  • Blaðsíðutölin á myndinni vísa á gögn  um viðkomandi  landanir og endurvigtanir í skjalinu hér að neðan.
  • Feitletruðu hlutfallstölurnar sýna í prósentustigum mismuninn á íshlutfalli í aflanum við endurvigtun að viðstöddum eftirlitsmanni í samanburði við meðalísmagn í öllum afla viðkomandi skips sem aðili  vigtaði á tímabilinu. Mismunurinn  birtist í prósentustigum.
  • Svo dæmi sé tekið er efst á listanum aðili þar sem íshlutfallið í aflanum  var að meðaltali 13.48% en við yfirstöðu eftirlitsmanns reyndist það  6,82%.  Mismunurinn er 6,66 prósentustig sem íshlutfallið er lægra við yfirstöðu en það var í aflanum að jafnaði á tímabilinu.

 

Grunngögn um hlutfall kælimiðils hjá vigtunarleyfishöfunum

Í gögnunum eru þær vigtanir þar sem eftirlitsmenn hafa verið viðstaddir auðkenndar með bláum lit en aðrar vigtanir eru sýndar gráar.

Excel-skjal með talnagögnum

 

Deila: