Fiskimjölsverksmiðjan á Seyðisfirði rýmd vegna snjóflóðahættu

Deila:

Í gærkvöldi var fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði rýmd vegna snjóflóðahættu. Þegar skilaboðin um rýminguna bárust var löndun á kolmunna úr Margréti EA nýhafin og verið var að hefja vinnslu.

Heimasíða Síldarvinnslunnar hafði samband við Gunnar Sverrisson verksmiðjustjóra og spurði hann nánar út í rýminguna. „Það var um kl. 9 í gærkvöldi sem lögreglan hringdi í mig og tilkynnti að rýma ætti svæðið undir Strandartindi sem verksmiðjan stendur á. Það gekk fljótt að rýma verksmiðjuna en heldur lengri tíma tók að aftengja löndunarbúnaðinn en ég fór síðastur af svæðinu klukkan rúmlega 10. Þegar löndun var hætt færði kolmunnaskipið sig á aðra bryggju.

Fundað var í morgun á Veðurstofunni og síðan er ráðgert að funda þar aftur um hádegisbil. Rigningin sem nú er hérna er meiri en gert hafði verið ráð fyrir og í fjöllunum er þykkt snjóteppi þannig að óttast er að  blautflóð geti farið af stað. Ég kannast ekki við að snjóflóð hafi fallið á það svæði sem verksmiðjan stendur á en slík flóð hafa fallið sitt hvoru megin við það svæði. Ég er hræddur um að okkur verði ekki hleypt inn á verksmiðjusvæðið í dag en það mun sjálfsagt skýrast þegar líður á daginn,“ sagði Gunnar.

Deila: