„Fæðingarorlofið” að hefjast

Deila:

Hið árlega hrygningarstopp eða fæðingarorlof þorsksins, eins og það er stundum kallað, er að nálgast.  Það hefst 1. apríl, á páskadag, en þá lokast svæði með Suðurströndinni mjótt belti vestur um og norður að Skorarvita.  Veiðisvæði lokast svo eitt af öðru.  Formlega lýkur stoppinu 15. maí þegar opnað verður fyrir veiðar í Húnafirði.

HrygningarstoppFrá þessu er greint á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda og segir þar ennfremur:Tilgangur þessarar veiðistöðvunar er að gefa þorskinum góðan frið við hrygninguna, en með því telja vísindamenn Hafrannsóknastofnunar að auknar líkur séu á enn stærri þorskstofni.

Stærð þorskstofnsins 2017 mældist 1.356 þúsund tonn.  Vöxturinn var 9% milli ára.  Í skýrslu Hafrannsóknastofnunar frá 2017 spáir stofnunin því að veiðistofn vaxi áfram og mælist 1.444 þúsund tonn í ár.

Niðurstaða  stofnmælingar botnfiska á Íslandsmiðum sem nýlega er lokið, segir svo til um endanlega stærð stofnsins.  Helstu niðurstöður verða kynntar í apríl.  Hrygningarstoppið nú er það 27. í samfelldri röð þess, en því var fyrst komið á árið 1992.

 

Deila: